Svabbi McGrady
31.05.2007 14:20:14 / svabar

Sumarið er mjög fine

Haha... Eins og kom fram á síðasta bloggi þá er ég kominn í sumarfrí og búin í grunnskóla og svona. en ég hélt uppá það með því að fara til Færeyja með bekknum mínum, og var það alveg glimrandi ágætt, mikið af kirkjum og ég er nátturulega kirkjuaðdáandi þannig að ég blómstraði í þessari ferð.Mikið að var af "tæpu" fólki sem gat verið nokkuð Niðurdrepandi en svona er þetta,,,,

ég trúi ekki að ég sé að fara að gera þetta en ég er að hugsa um að skrifa upp ferðasöguna,,,bara fyrir hana Siggu litlu Árdal,þar sem að hún er mikill bloggari og líka mjög góð að lesa.. sjitt.

Miðvikudagur 16.Mai

Fór í minn heittelskaða skóla um morguninn og lagði af stað til Seyðisfjarðar klukkan 10. og var kominn einhverntímann,keyptum okkur fótbolta og skelltum rasskelltum nokkra 7.unda bekkinga á sparkvellinum í grenndini,,eða Guðbergur sá aðalega um það en hann  fór hamförum og  sparkaði boltum í hausa og braut lappir,,eða svona hérumbil, Síðan fórum við um borð í dallinn sem að var myndarlegur og það voru varla liðnar 5mínútur þangað til að við fórum að taka eftir miklu vangefnu fóllki í svona kringum 80% farþegana var eitthvað "tæpt" og ég hef nú alls ekkert á móti því en þetta var dáldið niðurdrepandi en svona er þetta bara menn ætluðu nú að kíkja í sund en það gékk ekki þar sem að það tók klukkutíma að finna laugina og annan klukkutíma að komast á réttann stað þannig að það var búið að loka þegar við mættum á staðinn....Seinna um kveldið var maður bara að missa sig uppá Deckinu hljarstökk og læti?...nei hver veit... og síðan fór maður í bíó á myndina 300 en hún var mössuð í alla staði og voru teknar nokkrar magaæfingar fyrir háttinn.

Fimmtudagur 17.Mai

Ég og Gunnar vöknuðum og skelltum okkur niður í smá bekk klukkann 9 og síðan nenntum við ekki sund sem ég sé mikið eftir í dag...en síðan drullaðist afgangurinn af strákunum niður um 10 leitið (sjitt man aldrei hvort það er y eða i í þessu helvíti) og við fórum´upp í Driftara bílaleikinn sem að ég elska svo mikið og síðan renndum við í land. skelltum okkur uppá farfuglaheimili og síðan fórum við út að borða á pizza 67 eða hut man ekki... en síðan sofanði maður einhvertímann minnir mig.

Föstudagur 18.Mai

Borðaður var fáranlega skemmmtilega góður morgunmatur á einhverju fine hoteli og síðan renndi maður niðrí bæ í SMS verslundarmiðstöðina og þar var manni keypt eitthvað af drasli og síðan var labbað niðrí bæ og keypt meira drasl en síðan stönglaðist ég inní einhverja tónlistarbúð og þar prófaði ég ekki meira né minna en 260þúsund króna Gibson les paul! jahá það var nú hápunktur þess dags en helvítis rugl er þetta færeyjangar eru með Gibsona í röðum í hvaða einustu verslunar dollu en við helvítis íslendingarnir þurfum að panta þetta og skjótast til Bandaríkjana og djöflast í þessu í marga mánuði til að komast í návigi við svona gítara...helvítis leiðindi,, en síðan fór maður heim að borða eitthvð gott og síðan sofnaði maður.

Laugardagur 19.Mai

Vaknað og fékk mér morugnmat og sjá fallegu stelpuna við morgunmatinn og síðan var keyrt frá 10 - 5 eða 6 og á þeim tíma tókst manni að skoða 4 kirkjur og fleira skemmtilegt síðan borðaði maður og sofnaði

Sunnudagur 20.Mai

Morgunmatur með fallegu stelpuni og síðan var keyrt og skoðuð einhver rosa gömul kirkja frá 1300 og síðan var keyrt í klukkutíma og þá var farið í bátsferð undir björg og læti en það var alveg fáranlegar öldur sem að gerðu þetta ennþá skemtilegra en við voru á einhverjum litlum dall og stukkum útum allt virkilega skemmtilegt drasl og síðan eftir það var keyrt í gjágv og skoðað og síðan borðaði fólkið slatta og á endanum sofnaði það.

Mánudagur 21 Mai

Morgunmaturinn góði, með fallegu stelpuni og síðan var öllu draslinu pakkað saman og rennt niðrí bæ og þaðan var siglt útí eyja að heimsækja einhvern virkilega skrítinn skóla þar sem að allir þóttust vera geðveikt góðirí fótbolta en gátu ekki neitt:S síðan forum við í Norrænu klukkann 5 og þá var farið í ræktinna og gerðir góðir hlutir,,þar hittum við meðal annars útlending sem að tók 90kg 15x í bekk án þess að svitna ég nátturulega bætti um betur og tók 20x bara á þrjóskunni… en eftir það fengum við strákarnir okkur hlaðborð sem að var frekar heimskulegt þar sem að veðrið var að verða verra vá þetta voru mörg V.. en síðan djöflaðist báturinn alla nóttina og ég var frekar grænn á köflum en þetta blessaðist.

 Þriðjudagur 22 Mai

Vaknaði snemma og pakkaði draslinu og fór í Drift leikinn en ég náði þeim stórbrotna árangri að ná 8 og 11 besta tíma frá upphafi í þessum kassa þarna á dallinum en það er frábær árangur og gerði það meira segja í manual stillingu fuss um svei… En við komum í land klukkann 10 og var þaðan keyrt heim í stórutjarni þar sem að beið okkar pizza að hætti Hrafnhildar.Vá ég er góður að skrifa

Síðan fór maður nú til Rekjavíkur og gerði góða hluti stökk 1.90 og var nálægt 1.93, rétt sleikti draslið og svo kastaði maður 55 metra með 700gr spjóti þannig þettta lítur mjög vel út J  En þetta er alltof langt

Comment á þetta  

Hvað á að gera í sumar?

á að kaupa sér massa ferguson?

Hvað tekuru í bekk?

Drekkuru kókómjólk?

Slipknot eða Stone Sour?

núðlur eða pasta?

sefuru með punghlíf?

 (Tolli spreading love)

» 11 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 16:45:01 / svabar

Gamla Góða

Góðan Daginn

ég ákvað að skella einu bloggi hingað inn þar sem að það liggur svona vel á mér,

Djöfull líður mér vel

ég er að springa úr skemmtilegheitum

Allt að gerast

Ég var að koma úr síðasta samræmdaprófinu mínu sem að var bara nokkuð skemmtilegt próf,

á morgun er próf

og hinn daginn

og síðan á mánudaginn

og líka þriðjudaginn...

en mér er alveg sama

af því að á miðvikudaginn fer ég til færeyja

og þá verð ég búin í grunnskóla..

og get farið í framhaldskóla og..

pumpað..

Spilað..

rasskellt Hjalta á hverjum morgni...

Drukkið eins mikið creatine og ég vill...

ropað..

prumpað...

vá hvað ég hlakka til

Ég fer í Framhaldsskólann á Laugum... menn verða bara að sætta sig við það

þó ætla ég að stunda Akureyrinna stíft,

enda eiga sumir Imprezur þar.

Sumarið leggst vel í mig,,

nokkuð mikið af mótum og drasli...hver veit nema drengurinn kasti mjög langt og fari 3svar 4um sinnum til útlanda.. hver veit....

það væri gaman...

En ég hvet fólk til að commenta,,,hver sem þú ert...mér er alveg sama....

......ég er í svo góðu skapi..!

 

(eitthvað sem að menn mega commenta um):

Hvað á að gera í sumar?

á að kaupa sér Massa ferguson?

Hvað tekuru í bekk?

Drekkuru kókómjólk?

Slipknot eða Stone Sour?

núðlur eða pasta?

sefuru með punghlíf?

 

En ég ætla að fara reyna skrífa hérna þegar ég hef ekkert að gera...ég lofa 

En hafið það gott :haha:

 

 


» 14 hafa sagt sína skoðun


Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti